
Veitingastaðurinn Friðrik V hefur getið sér orð fyrir vandaða matargerð og sérstaka áherslu á svæðisbundið hráefni. Við kapp-kostum að bjóða gestum okkar bragðgóðan mat, framreiddan af listfengi í fallegu umhverfi.
Við erum sérstaklega stolt af hönnun veitingasalarins. Heiðurinn af henni eiga þær Fanney Hauksdóttir, arkitekt, og Margrét Jónsdóttir, leirlistakona.





