Flýtilyklar
Pönnusteiktur lax með sesamfræum, tzatziki og súrsætri sveppasósu
4 til 6 laxastykki (180 g), bein- og roðlaus
1 eggjahvíta
salt og pipar
½ dl sesamfræ
2 msk sesamolía
olía til steikingar
Aðferð
Þeytið eggjahvíturnar létt, veltið laxinum upp úr þeim og stráið sesamfræjunum yfir.
Hitið pönnu vel, hellið sesamolíunni ásamt hinni olíunni út á pönnuna og steikið laxinn á meðalhita (snúið roðhliðinni upp) þangað til laxastykkið er gullið að lit. Þá er fiskurinn tekinn af pönnunni og látinn standa í 100°C heitum ofni í 10 mín. Gott er að gera sósuna og meðlætið áður en fiskurinn er steiktur.
Súrsæt sveppasósa
3 dl vatn (eða
fisksoð)
1 dl hvítvínsedik
1 dl sykur
1 msk tómatpurré
½ sítróna
1 laukur
maisenamjöl til þykkingar
100 g sveppir
2 msk sesamolía
2 msk steinselja
Aðferð
Sjóðið vatn eða soð ásamt ediki, sykri, purré, sítrónu og lauk í 30 til 40 mín. Sigtið og jafnið með maisenamjöli.
Skerið sveppina í sneiðar og brúnið í sesamolíunni, stráið steinselju yfir og setjið út í sósuna.
Tzatziki
1 agúrka
1 jógúrt
2 söxuð hvítlauksrif
2 msk saxað ferskt dill
3 svört piparkorn
4 kóreanderfræ
Salt
Skerið agúrkuna í 5mm þykkar sneiðar, stingið kjarnann úr og saltið létt. Hrærið jógúrtið út með saxaða hvítlauknum og dillinu. Maukið fræin í morteli og blandið saman við jógúrtblönduna. Skolið saltið af agúrkunum og blandið saman við jógúrtið.
Raðið agúrkunum upp í turn og setjið á diskinn ásamt laxinum og sósunni. Gott er að bera fram steikt grænmeti með þessum rétti.




