Flýtilyklar
Exótísk ísþrenna
Sveskju- og
koníaksís
100 g sveskjur
½ dl koníak
Hellið koníakinu yfir sveskjurnar í lokuðu íláti og geymið yfir nótt í kæliskáp.
3 dl mjólk
6 eggjarauður
180 g sykur
5 dl rjómi
Mjólkin er hituð hægt
upp að suðu en ekki látin sjóða.
Þeytið eggjarauðurnar
ásamt sykrinum í 1-2 mínútur, þá er mjólkin hituð að suðu og mjórri bunu hellt út í eggjablönduna, sem er
þeytt vel á meðan.
Sigtið blönduna í
aðra skál og kælið í köldu vatni eða í ís á meðan rjóminn er léttþeyttur.
Blandið rjómanum varlega
saman við eggjablönduna með sleif , maukið sveskjurnar í matvinnsluvél (ekki koníakið sem sveskjurnar hafa ekki drukkið í sig) og hrærið
saman við ísblönduna með sleif. Frystið blönduna í skálinni og hrærið reglulega í í 2 til 3 tíma. Þá er
ísnum hellt í plastbox með þéttu loki og hann settur í frysti sem er u.þ.b. –8°C.
Kirsuberja- og chilí-ís
100 g kirsuber (úr
krukku)a
½ teskeið þurrkað smá-chilí
Merjið chilíið smátt í morteli og maukið ásamt kirsuberjunum í matvinnsluvél.
3 dl mjólk
6 eggjarauður
180 g sykur
5 dl rjómi




