fridrikv.is

Friðrik V Restaurant

Salat með hundasúrum og brauðteningum

Fyrir 4 manns


1 poki blandað salat

2 bollar ný tíndar hundasúrur (ekki með stylkum)

4 heilhveitibrauðsneiðar

Ólífuolía Carapelli ófilteruð

1 lime

Kristalsalt

Svartur pipar nýmalaður

½ bolli Furuhnetur

16 stk Kirsuberjatómatar

100 gr Parmesan ostur Galbani


Aðferð

Skerið skorpuna af brauðsneiðunum, síðan í fallega teninga sem eru brúnaðir í heitri olífuolíu á vel heitri pönnu í smá stund hreyfið teningana allan tíman á meðan þeir eru brúnaðir. Brúnið furuhneturnar á sama hátt á þurri pönnu. Leggið salatið og hundasúrurnar í ískallt vatn í 30 mín. setjið þá í salatvindu og vindið vatnið vel af setjið í stóra skál kryddið með saltinu og piparnum, kreystið safan út lime yfir. Hellið ólífuolíunni yfir blandið tómötunum, brauðteningunum og furuhnetunum saman við. Setjið í aðra skál og rífið parmesan ostin yfir og berið fram strax með góðu brauði og vel kældu Chardonnay.

Deildin

Framsetning efnis

English
moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning