Flýtilyklar
Hrísgrjónabaka með karrí og kókós
2 bollar hrísgrjón ( basmatí)
1 rauðlaukur
½ blaðlaukur ( græni parturinn )
5 sveppir
2 gulrætur
1 hvítlauksrif
1 msk karrý
2 msk kókósmassi
3 msk olífuolía
1 msk soyasósa (sæt)
3 egg
salt of pipar
Aðferð:
Hrísgrjónin soðin og kæld. Grænmetið er saxað, brúnað létt á pönnu í olíunni. Karrýinu, soyasósunni og kókosmassanum er blandað saman við hrísgrjónin. Hrærið eggin út, kryddið til með salti og pipar og blandið vel saman við hrísgrjónin. Hellið blöndunni út í form sem búið er að setja deig í skerið ræmur af deigi og leggið yfir sitt á hvað eins og á hjónabandssælu, penslið degið með eggjarauðu og bakið í 175°c ofni í 35 til 40 mínútur.Gott er að láta bökuna standa í 15 til 20 mínútur áður en hún er borðuð, einnig er gott að borða hana kalda með fersku salati.




