Flýtilyklar
Hörpuskelfisksúpa (Clam Chowder )
fyrir 4 til 6 manns
50 g laukur (saxaður )
150 g tómatkjöt (skorið í teninga )
1 kg hörpuskelfiskur
150 g kartöflur (skornar í teninga )
¼ dl smjör
½ tsk ferskt timjan
1 ½ l fisksoð
5-6 tvíbökur
4 msk söxuð steinselja
¼ dl vermouth
Laukurinn er svitaður í smjörinu, kartöflurnar, tómatkjötið, timjan og vín sett út í og soðið í smástund. Þá er fisksoðið sett yfir og allt soðið í u.þ.b. 15 mín. Setjið þá hörpuskelina út í og sjóðið áfram í 5 -10 mín.
Smakkið súpuna til með salti, pipar og steinselju og jafnið hana með vel muldum tvíbökum. Berið fram með þeyttum rjóma og nýbökuðu brauði.




