800 til 1000 g þorskflök
400 g Rigatoni Napoletani pasta
1 dl olífuolía
½ dl rifinn parmesanostur
4 brauðsneiðar
Roðrífið þorskinn og skerið í 150 til 200 g stykki. Hellið ólífuolíu yfir fiskinn og geymið í kæli í 15 til 20 mín.
Sjóðið pastað í söltu vatni í 10 til 15 mín. og kælið það vel undir rennandi vatni.
Skerið skorpuna af brauðsneiðunum og skerið þær í jafna teninga.
Steikið brauðteningana upp úr olíu og hreyfið þá stöðugt á meðan þangað til þeir eru fallega brúnaðir, þá er gott að setja þá á bréfþurrku til að losna við alla umframolíu.
Minestronesúpa
200 til 300 g borlotti baunir (mega vera
nýrnabaunir)
½ dl ólífuolía
1 stór laukur (smáttsaxaður)
3 gulrætur (saxaðar)
2 sellerístönglar (saxaðir)
4 hvítlauksgeirar (smáttsaxaðir)
2 l fisksoð
½ l hvítvín
4 til 5 sneiðar beikon
6 tómatar (saxaðir)
1 lárviðarlauf
1 kvistur rósmarin
¼ dl ferskt basil (saxað)
Leggið borlottibaunirnar í bleyti í köldu vatni yfir nótt, svitið lauk, hvítlauk, gulrætur og sellerí í olíu í djúpum potti undir loki í nokkrar mínútur.
Sjóðið hvítvínið niður um helming í öðrum potti, bætið fisksoðinu út í og sjóðið áfram í tíu til tólf mínútur ásamt beikoninu, lárviðarlaufinu og rósmarinkvistinum.
Hellið vatninu af baununum og bætið þeim út í grænmetispottinn ásamt tómötunum. Sigtið soðið yfir grænmetið og sjóðið við vægan hita í klukkutíma. Setjið pastarörin út í súpuna síðustu fimm til tíu mínúturnar.
Steikið fiskinn á vel heitri pönnu upp úr olíunni sem hann er búinn að liggja í. Gott er að hreyfa stykkin til á meðan þau byrja að steikjast. Þegar búið er að steikja fiskinn báðum megin er hann tekinn af pönnunni og látinn standa í smástund. Setjið súpuna í stóran súpudisk, fiskstykkið ofan í miðjan diskinn, stráið basil, parmesan og brauðteningum yfir fiskinn og berið fram með sítrónu.





