Forréttur fyrir 4
Aðalréttur fyrir 2
1 kg bláskel
½ laukur
2 hvítlauksrif
1 dl söxuð steinselja
1 stór bjór
½ L sjór
1 msk smjör
Sjávarsalt
Salt og pipar
Aðferð:
Saxið laukinn, mýkið laukinn og hvítlaukinn í smjörinu í djúpum potti. Setjið blákel útí látið krauma í smástund, þá er steinseljan, bjórinn og sjórinn sett útí, smakkið til með salti og pipar. Soðið þar til að skelin er vel opin.
Borið fram með nýbökuðu brauði, sítrónubátum og hluta af soðinu.





