
Friðrik V flutti í nýuppgert húsnæði við Kaupvangsstræti í miðbæ Akureyrar um mitt sumar 2007. Húsið á að baki sér rösklega 100 ára sögu og hýsti á sínum tíma fjölbreytta matvæla- og iðnaðarstarfsemi Kaupfélags Eyfirðinga. Það var byggt sem sláturhús en í því var síðar m.a. bögglageymsla, mjólkurbú, verslun og fleira. Áður en KEA og Friðrik V gerðu samning um nýtt hlutverk hússins og endurbætur þess hafði það staðið ónotað í um þrjá áratugi. Húsið tók eðlilega miklum stakkaskiptum að innan sem utan. Húsið er í eigu KEA og innan dyra má sjá myndir frá starfsemi í húsinu á sínum
Það er sannarlega við hæfi að veitingastaður sem leggur áherslu á svæðisbundið hráefni til nútima matargerðar starfi nú í því húsi þar sem matvælavinnsla hófst við Eyjafjörð.

Sjá má fleiri myndir frá uppbyggingu á húsnæðinu í Myndakaflanum hér til vinstri.





