
Veitingastaðurinn Friðrik V opnaði 25. júlí 2001 af Friðriki Val Karlssyni og konu hans, Arnrúnu Magnúsdóttur. Staðurinn sérhæfir sig matreiðslu úr fersku, svæðisbundnu hráefni, á matseðlinum er fjölbreytt úrval af fisk-, kjöt- og grænmetisréttum.
Heimilsfang og sími:
Veitingahúsið Friðrik V.
Kaupvangsstræti 6
600 Akureyri
fridrikv@fridrikv.is
Sími: 4615775 / Fax: 4615776
Í júlí 2007 flutti veitingastaðurinn í Kaupvangsstræti 6, í sögufrægt hús í hjarta miðbæjar Akureyrar.
Nafnið
FRIÐRIK V er komið til þar sem yfirkokkurinn og eigandinn heitir Friðrik Valur og þessi staður er fimmti (V.) staðurinn á Akureyri þar sem hann er kokkur.
Þau hjónin eru áberandi í öllu starfi staðarins og Friðrik gerir mikið af því að hitta gestina. Þess má til gamans geta
að börnin þeirra Karen Ösp og Axel Fannar eru einnig orðin áberandi í veitingarekstrinum, sérstaklega þegar fjölskyldan tekur að
sér kynningar fyrir fyrirtæki og stofnanir fyrir utan fyrirtækið. Einnig hefur staðurinn notað Friðrik V. Danakonung í auglýsingum og
við gerð lógóa o.s.frv.
Viðurkenningar sem Friðrik V hefur fengið:
Heiðursviðurkenning félagsinsMatur úr héraði – Local Food 2006
Rough Guides – 2007-2008
Tilnefning til heiðursverðlauna norrænu ráðherranefndarinnar 2007
Valinn einn af 100 athyglisverðustu veitingastöðunum í svæðisbundinni matarmenningu innan „Slow Food“ 2006
Maður ársins hjá Svæðisútvarpi Norðurlands 2006
Maður ársins hjá N4 2006





