fridrikv.is

Friðrik V Restaurant

Fréttir

Í gær héldu nemendur okkar í valgreininni Matur úr Héraði og siðir sína eigin útskriftarveislu

Þau buðu foreldrum sínum, kennurum, skólastjórum og þeim birgjum sem við heimsóttum í vetur í náminu.
Að vanda stóðu þau sig með sérstakri prýði og megum við norðlendingar vera stolt af komandi kynslóð okkar.
Hér eru myndir frá undirbúningi, en þau völdu matseðilinn sjálf og var m.a. nautasteik með bernes, tortilla með saltfisk og brie, skyrbrulle og fleira og fleira, að ógleymdum kokteilum sem þau bjuggu til úr mysu o.fl.

Við eigum eftir að sakna þeirra mikið.

Þess má geta að Siggi Gunnars sem sér um þátt hjá N4 sjónvarpsstöðinni kom til þeirra og tók viðtal við þau. Við eigum von á að það verði sýnt á fimmtudagskvöldið í þættinum hans.

Hér eru nokkrar myndir frá útskriftinni þeirra:












Við eigum eftir að sakna þeirra mikið.

Í vetur fengum við
sjónvarpsstöð okkar Akureyringa í heimsókn N4 og hér má sjá þá heimsókn.
Fyrri hluti:  http://www.n4.is/tube/file/view/695/
Seinni hluti: 
http://www.n4.is/tube/file/view/694/

Einnig er hægt að kynna sér kennsluna nánar hér til vinstri merkt Kennsla, og fleiri ljósmyndir eru til vinstri undir Myndir




Deildin

Framsetning efnis

English
moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning