Konur með penna á FRIÐRIK V
föstudagur 04.desember 2009
Þær byrjuðu sumar að yrkja strax á barnsaldri. Fæstar þeirra áttu lausa stund til skrifta fyrr en seint á kvöldin eftir langan vinnudag og þegar öll börnin voru komin í ró. Við kertaljós í þröngum kotum sköpuðu þær dýrmætar perlur í bókmenntasjóð íslensku þjóðarinnar. Þó hefur fátt verið gefið út af ljóðum og sögum þessara formæðra okkar og var fæstum þeirra gert jafnhátt undir höfði og karlkyns kollegum þeirra.
Í KONUR MEÐ PENNA skyggnumst við aftur í tímann og flytjum ljóð og sögur eftir nokkrar norðlenskar skáldkonur, sem lifðu á 19. og 20. öld, segjum frá fjölbreyttu lífshlaupi þeirra og kryddum dagskrána með söng.
Samstarf Leikfélags Akureyrar og Friðriks V.
Samantekt og umsjón: María Sigurðardóttir.
Flytjendur: Bryndís Ásmundsdóttir, Jana María Guðmundsdóttir, Sunna Borg, María Þórðardóttir, Arnrún Magnúsdóttir og María Sigurðardóttir.
Miðasala í síma 4 600 200 og á www.leikfelag.is





