Flýtilyklar
Fréttir
Ný myndlistasýning hjá okkur Karen Björk Óskarsdóttir sýnir
Flæði.
Finnum sveigjanleikann og gefum eftir.
Karen Björk Óskarsdóttir fæddist 29. september 1974 á Akureyri.
Stundaði hún m.a. nám við Myndlistaskólann á Akureyri frá 1999 til 2005, fornámsdeild og síðan listhönnunardeild (grafísk
hönnun).
Eftir nám fluttist Karen til Reykjavíkur og hóf störf við hönnun af ýmsum toga.
Hughrif tilfinninga og umhverfis hafa verið aðalinnblásturinn í verkum Karenar.
Þar túlkar hún tilfinningar á frjálslegan en djúpan hátt undir áhrifum líðandi stundar. Verk hennar að þessu sinni eru
unnin með blandaðri tækni, akrýl á gler.
Innblásturinn að þeirri hugmynd varð til í námi hennar í listhönnunardeildinni og hefur Karen þróað hana síðan 2003.
Karen hefur tekið þátt í nokkrum samsýningum en er þetta hennar fyrsta einkasýning.
Hádegis kort til sölu
5 máltíðir kr. 8.000.-
10 máltíðir kr. 15.500.-
Auk þess sem notuð kort, fara í pott sem við drögum úr um hver mánaðarmót og hlýtur heppinn notandi verðlaun.
Við erum í sumarfríi til 10.maí
Opnum kl.17.30 þann 10.maí
Kveðja Adda, Friðrik og starfsfólk















